Monday, July 31, 2006
Posted at 11:26 pm by kolumkilli
Thursday, April 27, 2006
Eins og glöggir lesendur Landnámsmannsins hafa tekið eftir hefur lítið verið hripað á rafspjöld sögunnar undanfarin misseri. Landnámsmaðurinn hefur eitt sínu púðri í að klára meistararitgerð sína sem hefur með tíð og tíma hlotið vinnuheitið Þokkalegaskinna.
Nú líður senn að sögulokum í Noregi og hefur Landnámsmaðurinn fest sér far með flugskipi einu út til Íslands þar sem heyrst hefur að smjör drjúpi af hverju strái. Landnámsmaðurinn hefur kennslu við skóla einn sem kenndur er við Laugalæk í nágrenni við hinn forna reyk þar sem land byggðist fyrst á Íslandi.
Auk þess að stunda kennslu verður starfskröftunum deilt jafnt milli rannsókna hjá Kennaraháskóla Íslands og kennslustarfa. Ef skipið hreppir góðan byr má ætla að Landnámsmaðurinn snúi aftur til heimkynna sinna þriðja dag júlímánaðar næstkomandi.
Ef þannig vill til að einhver viti af heppilegri 2-3 herbergja íbúð til kaups eða leigu í nágrenni Laugardalsins þá má sá hinn sami gera Landnámsmanninum kunnugt um.
Posted at 03:39 pm by kolumkilli
Monday, October 24, 2005
Rannsóknarleiðangur til Bóhemíu
Nú lætur landnámsmaðurinn kné fylgja kviði og ritar aðra bloggfærslu mánaðarins. Ýmislegt hefur drifið á daga landnámsmannsins undanfarinn misseri. Ber þar helst að nefna rannsóknarleiðangur til Bóhemíu með ráði stúdenta frá uppeldis- og kennslufræðiskor. Þar voru gerðar samanburðartilraunir á verði og gæðum á heimalöguðu öli. Rannsóknin fór fram í höfuðstað Bóhemíu sem í daglegu tali er kallaður Prag eða Praha á máli innfæddra.
Landneminn er búinn að kaupa sér pláss í flugfari einu sem heldur til Keflavíkur 20. desember næstkomandi og heldur þaðan austur í Jökulsárhlíð til að heiðra jólalambið í faðmi fjölskyldunnar. Á nýárinu er förinni heitið til Reykjavíkur þar sem landneminn verður við störf í janúar og febrúar hjá rannsóknarstofnun Kennaraháskólans í tímabundnu verkefni.
Posted at 05:13 pm by kolumkilli
Friday, October 07, 2005
Landneminn var klukkaður af myrkri (hljómar eins og skammdegisþunglyndi). Þar að segja ég hef verið manaður á bloggsíðunni myrkur.blogdrive.com til að: eins og þar segir „að ausa út einskisverðum upplýsingum um sjálfan mig“.
1. Ég er með plásturslaga fæðingablett framan á hægra sköflungi.
2. Ég er skráður fyrir marki í nýju markaskránni (gagnbitað hægra, tvístíft aftan vinstra)
3. Ég er hef frá unga aldri verið þungt haldinn af félagastofnunaráráttu sem byrjaði með spæjaraklúbbnum x-e (dulkóði fyrir ekse: Elsa, Kristján, Soffía, Eyrún).
4. Ég byrjaði að drekka kaffi 15 ára um sumarnótt í heyskap við eldhúsborðið í Hlíðarhúsum.
5. Ég datt ekki í pott með kraftadrykk eins og Steinríkur þegar ég var barn.
Þar sem ég hef ekki fært bloggfærslu í 5 mánuði er hæpið að nokkur maður taki eftir að hann hafi verið klukkaður af mér. En ég held í hefðina og klukka hér með Sérann
Posted at 02:48 pm by kolumkilli
Thursday, April 21, 2005
Sumarið nálgast eins og óð fluga
Þá er fyrsti dagur sumars loksins formlega kominn og ég búinn að kaup flugmiða. Þetta árið sneiði á snilldarlegan hátt framhjá "borg óttans" með því að fljúga beint í Egilsstaði frá Kaupmannahöfn.
Verð mættur í sveitina 19. júní og læt mig hverfa aftur í skólann 22.ágúst.
Sjáumst í sundi
K
Posted at 06:14 pm by kolumkilli
Wednesday, March 23, 2005
Á þaki þínu grær lítill fífill. Í garði þínum er birkihrísla svo gömul að elstu menn sjá fram til að liggja undir rótum hennar.
Þú hefur hýst mig í gleði og sorg. Þú ert hjarta mitt ranghverft. Ég geng inn í þig og andi þinn leggst yfir mig eins og dúnsæng á kaldri nóttu. Í þér verður söngur lofgjörð. Í þér verður hvert tár að lofsöng til lífsins, uppreisn sálarinnar.
Gluggar þínir hleypa inn hlýrri birtu sem framkalla skuggamyndir á veggjunum. Predikunarstóllinn stendur uppúr bekkjunum eins og kletttur uppúr mannhafinu, traustur og áreiðanlegur. Gráturnar marka landamærin til heilagleikans, grindverkið í hinum heilaga garði.
Ég er flís í tréverki þínu. Þú ert kirkjan mín.
Posted at 02:20 pm by kolumkilli
Monday, March 14, 2005
Á skíðum skemmti ég mér trallallalaa....
Já hver hefði trúað því, fyrrum kamakazi heimsmeistari í bruni þeirra sem ekki kunna á skíði varð fyrir uppljómun um helgina.
Íslenskir stúdentar í Osló fóru í skíðaferð til Norefjell um helgina (nánar á
www.fisn.tk) sá sem hér skrifar skíðaði sem aldrei fyrr og getur nú:
1. Beygt til hægri
2. Beygt til vinstri
3. Bremsað
4. Og dottið með elegans
Posted at 01:22 pm by kolumkilli
Tuesday, February 22, 2005
Góð vísa er aldrei of oft kveðin
Svo er friðr kvenna friður: ást
þeirra er flátt hyggja,
sem aki jó óbryddum
á ísi hálum,
teitum, tvévetrum teitur: kátur, fjörugur
og sé tamr illa
eða í byr óðum
beiti stjórnlausu
eða skyli haltr henda
hrein í þáfjalli. þáfjall: fjall í hálku
Posted at 04:00 pm by kolumkilli
Friday, February 11, 2005
Ég á afmæli í dag
Ég á afmæli í dag
Ég á afmæli sjálfur
Ég á afmæli í dag
Posted at 11:34 pm by kolumkilli
Wednesday, February 09, 2005
Landnámsmaðurinn staldraði við í fjöruborðinu. Hann velti því fyrir sér hvert hann væri kominn. Þessi strönd var ekki kunnugleg. Kuldann og hungrið dreif að. Hann varð að komast í skjól.
Hér er "allt við það sama" eins og Guðmundur frændi minn var vanur að skrifa í dagbækurnar sínar á sínum vélstjóraárum.
Einu fréttirnar eru kannski þær að mér lærðist loks að hringja heim í gegn um netið. Stórsniðug þjónusta á
www.skype.com sem gerir manni það mögulegt að hringja heim á innanlandstaxta.
Posted at 10:46 pm by kolumkilli